18 ágú. 2012Núna er hálfleikur í leik Íslands gegn Slóvakíu, staðan er 44-36 fyrir Ísland , staðan eftir 1.leikhluta var 21-17 fyrir okkar drengi. Pavel Ermolinskij meiddist í nára rétt fyrir leik og mun ekki taka þátt í leiknum , eins og komið hefur fram fór leikreyndasti leikmaður liðsins Logi Gunnarsson ekki með hópnum til Slóvakíu vegna veikinda. Það má því segja að íslenska liðið sé því án tveggja lykikleikmanna í þessum leik. Byrjunarlið Íslands var: Jón Arnór, Hlynur, Ægir, Jakob og Haukur. Íslenska liðið hefur spilað ágætlega í fyrri hálfleik og ef strákarnir verða aðeins öflugri í sóknarfráköstunum þá getur allt gerst hér í Levice. Stighæstu leikmenn Íslands. Jón Arnór Stefánsson 18 stig, Hlynur Bæringsson 7 stig og 6 fráköst, Helgi Magnússon 7 stig og 5 fráköst, Haukur Helgi Pálsson 5 stig, Jakob Sigurðarson 5 stig og Ægir Þór Steinarsson 2 stig.