17 ágú. 2012Á morgun er sannkallaður Slóvakíu-tvíhöfði þegar U18 ára landslið karla og A-landslið karla leika gegn Slóvakíu. U18 strákarnir leika gegn Slóvakíu kl. 11.30 að íslenskum tíma í Bosníu á Evrópumótinu en landslið Slóvakíu tekur á móti Íslandi í Slóvakíu í undankeppni EuroBasket 2013 og hefst leikurinn kl. 18.00 úti eða kl. 16.00 að íslenskum tíma. Báðir leikir verða í lifandi tölfræði á KKÍ.is í FIBA Europe tólinu á forsíðu en fyrir áhugasama bendum við á að fylgjast með á Facebook síðu KKÍ þar sem við munum setja inn tengla á leikinn úti á netinu þegar hann er að hefjast. ÍSLAND - ÍSRAEL á þriðjudaginn Við minnum á gríðarlega spennandi leik ÍSLANDS og ÍSRAELS sem fram fer hér heima, leik þrjú hjá landsliðinu, á þriðjudaginn kemur kl. 19.15 í Laugardalshöll. Miðasala er á [v+]http://midi.is/ithrottir/1/7049 [v-]www.midi.is[slod-] og kostar aðeins 1.500 kr. fyrir 16 ára og eldri og hægt er að fá miða á alla heimaleikina fyrir 5.000 kr. Fjölmennum og styðjum við bakið á okkar mönnum, það var frábær skemmtun að horfa á liðið gegn Serbíu. Áfram Ísland!