16 ágú. 2012Íslenska landsliðið hélt utan í gærkvöldi til Slóvakíu þar sem leikur tvö í undankeppni Evrópumótsins fer fram og eftir ferðalagið í dag eru strákarnir og fararstjórn komnir á leiðarenda. Liðið er í góðu yfirlæti á hóteli og munu æfa síðdegis. Logi Gunnarsson veikur Í gærkvöldi kom í ljós að Logi Gunnarsson, leikjahæsti leikmaður landsliðsins, hafði veikst og eftir skoðun var ekki talið skynsamlegt að hann myndi ferðast með liðinu í gær. Staðan var tekin aftur í dag og ákveðið hvort hann myndi halda út í dag. Það var sameiginleg niðurstaða allra að best væri að hann myndi hvílast og koma til baka í verkefnið fyrir leikinn á þriðjudaginn hér heima gegn Ísrael. KKÍ sendir strákunum úti og Loga baráttu- og batakveðjur!