15 ágú. 2012
Í gær hófst undankeppni EuroBasket 2013 með fyrsta leik mótsins og það var viðureign Íslands og Serbíu sem hóf mótið. Leikurinn endaði [v+]http://www.eurobasket2013.org/en/cid_8Xfg3jZMG1QuJnp6pnUWd3.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2013.gameID_8830-A-1-1.html [v-]78:91[slod-] fyrir Serbíu. Íslenska liðið heldur út í kvöld og leikur á laugardaginn gegn Slóvakíu úti og á næsta heimaleik á þriðjudaginn kemur, 21. ágúst, í Laugardalshöll kl. 19.15 gegn Ísrael. Í kvöld eru tveir leikir á dagskránni í A-riðli þar sem væntanlegir mótherjar okkar mætast. Hægt er að fylgjast með þeim leikjum í lifandi tölfræði á vef KKI.is í gegnum FIBA Europe tölfræðiglugganum sem þar er. Miðasala á leikinn er í fullu fjöri á [v+]http://midi.is/ithrottir/1/7049/ [v-]www.midi.is[slod-] en þar er hægt að kaupa miða á staka leiki sem og einn miða sem gildir á alla fimm heimaleikina á sérstöku tilboði. KKÍ hvetur alla landsmenn til að fjölmenna og sjá sterkt lið Ísraela sem léku á síðustu lokakeppni EM í Litháen sl. haust og styðja þar með við bakið á íslenska liðinu og horfa á skemmtilegan körfubolta.