14 ágú. 2012Hið margrómaða Streetballmót körfuknattleiksdeildar Heklu verður haldið í 4. sinn laugardaginn 18. ágúst. Mótið hefur vaxið og dafnað ár frá ári og er nú orðið fastur liður í körfuboltabransanum á suðurlandi. Keppt verður í bæði karla og kvennaflokkum. Þrír saman í liði, leyfilegt er að vera með varamann. Þátttökugjald er 5000 krónur á lið. Mótið byrjar kl 13:00 og verður búið milli 17 og 18. Eftir það er öllum keppendum boðið í sund. Veglegir vinningar í boði. Skráning hjá Ingi í síma :864-5950, hjá Kristjáni í síma: 846-6569 eða með emaili á siringi@hotmail.com.