13 ágú. 2012Nú er aðeins einn dagur í fyrsta leik íslenska landsliðsins í Evrópukeppninni en liðið tekur á móti Serbíu annað kvöld. Að gefnu tilefni viljum við benda áhorfendum á að kaupa miða á netinu og mæta tímanlega til að forðast biðraðir á leikstað. Því miður hefur það gerst á t.d bikarúrslitaleikjum að áhorfendur mæta 5 mín. fyrir leik og hafa þurft að bíða í röð þegar leikurinn ef hafinn. Hægt er að kaupa miða [v+]http://midi.is/ithrottir/1/7049/ [v-]hérna á www.midi.is[slod-]. Hér fyrir neðan má sjá stutt viðtal við Einar Bollason um hvað það er að leika fyrir íslenska landsliðið: