10 ágú. 2012Körfuknattleiksdeild UMFN, í samvinnu við Ljósanæturnefnd í Reykjanesbæ 2012, mun standa fyrir hraðmóti í körfuknattleik fyrir meistaraflokk kvenna. Þetta verður í fimmta skipti sem það er haldið. Áætlað er að mótið fari fram dagana 28.–31. ágúst (þriðjudag – föstudag). - Þátttökugjald er kr. 25.000,- pr. lið. - Reiknað er með að leikirnir verða 4x8 mín. og klukkan stoppuð í vítum ásamt síðustu mínútunni í hverjum leikhluta. Skráning og upplýsingar í síma 858-6020 eða í tölvupósti á [p+]shol@isavia.is[p-] shol@isavia.is[slod-]. Haukar eru núverandi Ljósanæturmeistarar.