10 ágú. 2012Eftir rúma klukkustund leika strákarnir í U18 ára liðinu sinn annan leik á Evrópumótinu í Bosníu þegar þeir mæta Svartfjallalandi. Leikurinn hefst kl. 18.45 að íslenskum tíma og er lifandi tölfræði að sjálfsögðu á sínum stað. [v+]http://karfan.is/frettir/2012/08/10/karfan_tv:_svipmyndir_ur_leiknum_gegn_sviss [v-]Karfan.is[slod-] birti í dag myndbrot úr leiknum í gær en þar má sjá rúmar 3 mín. af sóknartilburðum íslenska liðsins. Svartfjallaland lék við Norðurlandameistara Finnlands í gær og sigruðu þá með 5 stigum þannig að það verður fróðlegt að sjá hvernig okkar strákar taka á þeim á eftir. Áfram Ísland!