9 ágú. 2012Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir landsleikina framundan. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana fyrir leik Íslands og Serbíu sem fram þriðjudaginn 14.ágúst í eigin persónu mánudaginn 13.ágúst á skrifstofu KKÍ á milli 15:00 og 17:00 Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis: Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst skrifstofu KKÍ á sama tíma (Á milli 15:00 og 17:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll frá klukkan 18:00 á leikdag. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is. Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ“ Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni [v+]http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=23[v-]hér[slod-]