7 ágú. 2012Í dag var dregið í riðla í Lengjubikar karla og kvenna en dregið var í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal. Lengjubikar kvenna: Í Lengjubikar kvenna eru 10 lið. Öll átta liðin úr Domino´s deild kvenna og tvö lið úr fyrstu deild kvenna. Liðin eru eru dregin í tvo riðla en eitt lið er dregið úr hverjum styrkleikaflokki og leika öll liðin innbyrðis í einfaldri umferð. Efsta lið hvors riðils fer í úrslitaleikinn. Fyrsti leikdagur er 9. september en úrslitaleikurinn verður fimmtudaginn 27. september. Liðin eftir styrkleikaflokkum. 1. styrkleikaflokkur: Njarðvík og Haukar 2. styrkleikaflokkur: Keflavík og Snæfell 3. styrkleikaflokkur: KR og Valur 4. styrkleikaflokkur: Fjölnir og Grindavík 5. styrkleikaflokkur: Hamar og Stjarnan Riðlanir: A 1. Haukar 2. Snæfell 3. Valur 4. Fjölnir 5. Hamar B 1. Njarðvík 2. Keflavík 3. KR 4. Grindavík 5. Stjarnan Lengjubikar karla: Í Lengjubikar karla eru 16 lið. Öll 12 liðin úr Domino´s deild karla og fjögur lið úr 1. deild karla. Liðin eru dregið í fjóra riðla, eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki. Leikin er tvöföld umferð. Efsta lið hvers riðils fer í undanúrslit eða Final Four. Fyrsti leikdagur er sunnudagurinn 14. október en úrslitin eða Final Four verða föstudaginn og laugardaginn 23. og 24. nóvember. Liðin eftir styrkleikaflokkum. 1. styrkleikaflokkur: Grindavík, KR, Þór Þ. og Stjarnan 2. styrkleikaflokkur: Keflavík, Snæfell, Tindastóll og Njarðvík 3. styrkleikaflokkur: ÍR, Fjölnir, KFÍ og Skallagrímur 4. styrkleikaflokkur: Haukar, Valur, Hamar og Breiðablik Riðlarnir: A 1. Grindavík 2. Keflavík 3. Skallagrímur 4. Haukar B 1. KR 2. Snæfell 3. KFÍ 4. Hamar C 1. Stjarnan 2. Tindastóll 3. Fjölnir 4. Breiðablik D 1. Þór Þ. 2. Njarðvík 3. ÍR 4. Valur