7 ágú. 2012Í dag kl. 13.00 verður dregið í riðla í Lengjubikarnum 2012. Dregið verður í íþróttamiðstöðinni Laugardal á 3. hæð og eru allir velkomnir. Lengjubikar karla: Leikið er í fjórum riðlum og eru fjögur lið í hverjum riðli. Leikið er heima og að heiman. Efsta lið hvers riðils fer í undanúrslit eða Final Four. Dregið verður eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki í hvern riðil. Styrkleikaskipting: 1. styrkleikaflokkur: lið 1, 2, 3 og 4 sæti að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan. 2. styrkleikaflokkur: lið 5, 6, 7 og 8 sæti að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan. 3. styrkleikaflokkur: lið 9, 10, 11 og 12 sæti að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan. Liðið sem vinnur 1. deild skipar 11 sæti og liðið sem kemur upp í úrvalsdeild eftir úrslitakeppni 1. deildar skipar 12 sæti. 4. styrkleikaflokkur: Þau 4 lið sem leika í 1. deild karla. Þau eru liðin tvö sem féllu úr úrvalsdeild og þau tvö lið sem þátt tóku í úrslitakeppni 1. deildar árið á undan en töpuðu í úrslitakeppni deildarinnar. Liðin: 1. styrkleikaflokkur: Grindavík, KR, Þór Þ. og Stjarnan 2. styrkleikaflokkur: Keflavík, Snæfell, Tindastóll og Njarðvík 3. styrkleikaflokkur: ÍR, Fjölnir, KFÍ og Skallagrímur 4. styrkleikaflokkur: Haukar, Valur, Hamar og Breiðablik Lengjubikar kvenna: Leikið er í tveimur fimm liða riðlum. Ein umferð er í riðlinum. Efsta lið hvers riðils leikur til úrslita. Eitt lið verður dregið úr hverjum styrkleikaflokki. 1. styrkleikaflokkur: liðin sem léku til úrslita í úrslitakeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan. 2. styrkleikaflokkur: liðin sem töpuðu í undanúrslitum úrslitakeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan. 3. styrkleikaflokkur: lið 5 og 6 að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan. 4. styrkleikaflokkur: lið 7 að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan ásamt liðinu sem vann 1. deild kvenna. 5. styrkleikaflokkur: liðið sem féll úr úrvalsdeild og það lið sem tapaði úrslitaeinvígi 1. deildar árið á undan. Liðin: 1. styrkleikaflokkur: Njarðvík og Haukar 2. styrkleikaflokkur: Keflavík og Snæfell 3. styrkleikaflokkur: KR og Valur 4. styrkleikaflokkur: Fjölnir og Grindavík 5. styrkleikaflokkur: Hamar og Stjarnan