30 júl. 2012Þann 11. og 12. ágúst næstkomandi ætla Helena Sverrisdóttir og Körfuknattleiksdeild Hauka að standa fyrir æfingarbúðum á Ásvöllum í Hafnarfirði. Búðirnar eru opnar öllum stelpum á aldrinum 11-16 ára og munu búðirnar standa yfir frá laugardagsmorgni til sunnudagseftirmiðdags. Skráningar eiga að berast á hsverrisdottir@yahoo.com eða í síma 778-6822. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu [v+]http://www.haukar.is/karfa/6041-stelpubueir-helenu-og-hauka-dagskra[v-]Hauka[slod-].