24 júl. 2012
Í dag er komið að stórleik hjá íslenska landsliði karla þegar strákarnir mæta ólympíuliði Litháa í Siemens-höllinni í Vilinius. Leikurinn hefst kl. 16.00 að íslenskum tíma og er búist við um 8.000-9.000 manns á völlinn. Bæði lið eru að undirbúa sig fyrir komandi átök, Litháen leikur á ólympíuleikunum í London sem hefst í lok mánaðarins og íslenska landsliðið leikur í Evrópukeppninni sem fram fer dagana 14. ágúst - 11. september, þar sem leikið er heima og að heiman. Leikurinn í kvöld verður í einhverskonar lifandi tölfræði á vefsíðunni [v+]http://www.basketnews.lt [v-]www.basketnews.lt[slod-] og án ábyrgðar gæti verið að leikurinn væri aðgengilegur fyrir íslendinga í beinni á netinu á [v+]www.sport24.lt [v-]http://www.sport24.lt[slod-] og [v+]www.sportlive.lt [v-]http://www.sportlive.lt[slod-] en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpi í Litháen. ATH: hérna er leikurinn á netinu [v+]http://liveboxtv.com/?page=mOmRnaKWmKuUmOmRnaWcmaudl9vY1t8= [v-]http://liveboxtv.com[slod-]. og einnig [v+]http://livetv.ru/eventinfo/128020_lithuania_iceland/ [v-]hérna[slod-]. Myndir af strákunum úr ferðinni má sjá á [v+]http://www.facebook.com/kki.islands [v-] Facebook-síðu KKÍ[slod-]. Áfram Ísland!