21 júl. 2012A-landslið karla og U-16 ára landslið stúlkna leika á sama tíma í dag. U-16 ára landslið stúlkna mætir heimastúlkum frá Gíbraltar í öðrum undanúrslitaleik dagsins. Skotland og Kýpur eigast við í hinni viðureigninni. A-landslið karla leikur við úrvalslið frá Litháen á sama tíma. Báðir leikir hefjast klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Eins og venjulega er hægt að fylgjast með lifandi tölfræði frá U-16 ára liðinu okkar en leikurinn hjá A-liðinu verður ekki með lifandi tölfræði. Gangur leiksins og helstu tölur verða settar inn eins fljótt og auðið er.