19 júl. 2012Íslensku U-16 stelpurnar eru komnar í undanúrslit evrópumótsins í Gíbraltar eftir nokkuð auðveldan sigur á Wales 64-12. Mótspyrnan var ekki mjög mikil að þessu sinni en Íslendingar spiluðu sinn leik nokkuð vel. Næsti leikur íslenska liðsins er í undanúrslitum n.k. laugardag og það kemur í ljós í kvöld hverjir mótherjar Íslands verða.