19 júl. 2012A-landslið karla heldur til Litháen í fyrramálið þar sem leiknir verða tveir leikir ásamt því sem liðið fær að æfa við bestu aðstæður. Annars vegar verður leikir gegn liði skipað atvinnumönnum frá Litháen og hins vegar gegn Ólympíuliði Litháen. 21. júlí Úrvalslið Litháen – Ísland • 20:00 ( 17:00 íslenskum tíma ) 24. júlí Litháen – Ísland í Siemens höllinni í Vilnius • 19:00 ( 16:00 að íslenskum tíma ) Heimamenn búast við um 8-9.000 áhorfendum á leikinn í Vilnius en eins og menn vita þá er körfubolti þjóðaríþrótt í Litháen og stuðningur við landsliðið er gríðarlega mikill. Leikurinn verður í beinni sjónvarpsútsendingu í Litháen. Jakob Örn Sigurðarson átti ekki heimangengt þar sem hann og hans kona eiga von á barni á næstu dögum. Helgi Jónas Guðfinnsson aðstoðarþjálfari átti heldur ekki heimangengt í þessa ferð. Hópinn skipa eftirtaldir: 4 • Brynjar Þór Björnsson KR, 15 landsleikir 5 • Haukur Helgi Pálsson Manresa, 3 landsleikir 6 • Árni Ragnarsson Fjölnir, Nýliði 7 • Finnur Atli Magnusson KR, 8 landsleikir 8 • Hlynur Bæringsson (C) Sundsvall, 53 landsleikir 9 • Jón Arnór Stefánsson CAI Zaragoza, 53 landsleikir 10 • Helgi Már Magnússon KR, 66 landsleikir 11 • Axel Kárason Vaerlose, 4 landsleikir 12 • Pavel Ermolinskij Norrköping Dolphins, 22 landsleikir 13 • Ægir Þór Steinarsson Newberry College, USA, 2 landsleikir 14 • Logi Gunnarsson Angers BC 49, 81 landsleikur 15 • Sigurður Gunnar Þorsteinsson Grindavík, 27 landsleikir Þjálfari: Peter Öqvist Aðst.þjálfari: Pétur Már Sigurðsson Sjúkraþjálfari: Haukur Már Sveinsson Fararstjóri: Hannes Sigurbjörn Jónsson Fararstjóri: Friðrik Ingi Rúnarsson Þessi ferð er mikilvægur undirbúningur fyrir það skemmtilega og um leið krefjandi verkefni sem framundan er í Evrópukeppninni sem hefst 14. ágúst með leik Íslands og Serbíu í Laugardalshöll. Litháen er eins og Serbía á topp 10 lista yfir sterkustu körfuboltaþjóðir heims. [v+]http://london2012.fiba.com/pages/eng/fe/12/olym/team/p/eid/6232/lid//rid//sid/6229/tid/2135/profile.html[v-]Hér[slod-] er hægt að lesa um leikmannahóp Litháa og hvernig þeim gekk í umspilinu á dögunum fyrir London 2012: Þeirra þekktustu leikmenn: [v+]http://london2012.fiba.com/pages/eng/fe/12/olym/player/p/eid/6232/pid/36079/rid//sid/6229/tid/2135/profile.html[v-]Linas Kleiza[slod-] [v+]http://london2012.fiba.com/pages/eng/fe/12/olym/player/p/eid/6232/pid/16926/rid//sid/6229/tid/2135/profile.html[v-]Sarunas Jasikevicus[slod-] [v+]http://london2012.fiba.com/pages/eng/fe/12/olym/player/p/eid/6232/pid/62134/rid//sid/6229/tid/2135/profile.html[v-]Jonas Valanciunas[slod-] [v+]http://london2012.fiba.com/pages/eng/fe/12/olym/player/p/eid/6232/pid/24988/rid//sid/6229/tid/2135/profile.html[v-]Darius Songaila[slod-] [v+]http://london2012.fiba.com/pages/eng/fe/12/olym/player/p/eid/6232/pid/22206/rid//sid/6229/tid/2135/profile.html[v-]Rimantas Kaukenas[slod-] [v+]http://london2012.fiba.com/pages/eng/fe/12/olym/player/p/eid/6232/pid/44784/rid//sid/6229/tid/2135/profile.html[v-]Martynas Pocius[slod-] Hér er [v+]http://www.youtube.com/watch?v=i8M0HIJdWk4&feature=related[v-]myndbrot[slod-] frá leik Litháen og Serbíu frá Eurobasket 2011 sem fram fór í Litháen: