17 júl. 2012U-16 ára landslið stúlkna hafði sigur í sínum fyrsta leik í Evrópukeppninni í dag. Liðið bar sigurorð á Kýpur [v+]http://www.fibaeurope.com/default.asp?cid={5179A822-D4B1-4476-AD04-EDBC445D6DC6}&compID={011A4DA2-6039-4C1F-9FBD-FF6C8BB3561E}&season=2012&roundID=8982&gameID=8984-A-6-1[v-]66:43[slod-] Íslenska liðið byrjaði betur og náði strax undirtökunum og eftir fyrsta leikhluta var staðan 21:7 okkar stelpum í hag. Þessi munur hélst í öðrum leikhluta og var staðan 36:21 í hálfleik. Íslenska liðið vann báða leikhlutana í seinni hálfleik og urðu lokatölur eins og áður kom fram 66:43. Á morgun leikur liðið gegn Monaco og hefst leikurinn klukkan 09:30 í fyrramálið að íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræðinni í tölfræðiglugganum hægra megin á forsíðu kki.is.