17 júl. 2012Nú kl. 14.30 að íslenskum tíma munu stelpurnar í U16 ára liðinu hefja leik á Evrópumótinu sem fram fer á Gíbraltar. Fyrsti leikurinn er gegn liði Kýpur og verður fróðlegt að sjá hvernig þeim gengur í dag. Stelpurnar hafa æft vel fyrir brottför og mæta reynslunni ríkari til leiks eftir gott gengi á NM. Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði úr öllum leikjum mótsins hér á KKÍ.is hér til hægri á síðunni sem og skoða dagskrá Íslands á mótinu.