10 júl. 2012Lið Litháens, Rússland og Nígeríu skipa síðustu þrjú sætin í karlakeppninni á Ólympíuleikunum sem hefjast í næsta mánuði í London. Nígería lagði Dóminíska lýðveldið í lokaleik undankeppni ÓL og tryggði sér farseðilinn til London en leikið var í Venesúela. Riðlarnir: A-riðill: Litháen, Túnis, Bandaríkin, Frakkland, Nígería og Argentíma. B-riðill: Kína, Bretland, Brasilía, Ástralía, Rússland og Spánn. Í kvennaflokknum voru það landslið Kanada, Króatíu, Tékkland, Frakkland og Tyrklands sem komust áfram á Ólympíuleikana í gegnum forkeppni sem fór fram í Tyrklandi. Riðlarnir: A-riðill: Tékkland, Angóla, Bandaríkin, Króatía, Tyrkland og Kína. B-riðill: Rússland, Frakkland, Ástralía, Bretland, Brasilía og Kanada.