6 júl. 2012Í kvöld að íslenskum tíma hefjast 8-liða úrslit undankeppni ÓL2012 í Venesúela og nú er allt undir. Tímamismunurinn er -4.30 klst. fyrir þá sem eru að fylgjast með leikjunum á netinu. Liðin sem leika gegn hvort öðru í fyrstu umferð úrslitanna eru: Rússland - Angóla Grikkland - Nígería (sigurvegarar þessa leikja mætast í undanúrslitum) Makedónía - Dóminíska Lýðveldið Litháen - Púertó Ríkó (sigurvegarar þessa leikja mætast í undanúrslitum) Þau lið sem tapa eru úr leik. Þau fjögur lið sem eftir eru leika í 4-liða úrslitunum. Sigurvegarar þeirra leikja tryggja sér sæti á ÓL2012 með því að vera í 1. og 2. sæti mótsins og hafa þar með lokið keppni, en ekki er leikið um sigur. Tapliðin leika um þriðja og síðasta lausa sætið á sunnudaginn kemur í lokaleik mótsins. [v+]http://london2012.fiba.com/pages/eng/fe/12/olym/p/asid/6229/eid/6232/lid//rid//sid/6229/schedule.html [v-]Hér[slod-] má sjá allt um leikina og mótið.