1 júl. 2012Í dag, 1. ágúst, eru 14 dagar þar til íslenska landsliðið tekur á móti Serbíu hér heima í Laugardalshöll. Heimaleikir íslenska liðsins verða sem hér segir: 14. ágúst Ísland – Serbía, kl 20:00 21. ágúst Ísland – Ísrael, kl 19:15 27. ágúst Ísland – Eistland, kl 19:15 02. september Ísland – Slóvakía, kl 15:45 08. september Ísland – Svartfjallaland, kl 15:45 Miðasala er hafin á [v+]http://midi.is/ithrottir/1/7049/ [v-]midi.is[slod-] og hægt er að kaupa miða á hvern leik fyrir sig en einnig einn miða sem gildir á alla heimaleikina á frábæru verði. Þeir sem hafa áhuga á að fara á útileiki liðsins geta haft samband við skrifstofu KKÍ upp á miða og hótel upplýsingar sem hafa borist okkur vegna leikja í Evrópukeppninni.