26 jún. 2012Eftir jafnan og frábæran úrslitaleik þá beið U15 ára lið drengja lægri hlut fyrir Danmörku 69-65. Strákarnir sýndu gríðarlega karakter gegn stóru og góðu dönsku liði en úrslitin réðust á lokasekúndunum. Pólland lauk leik í 3. sæti eftir öruggan sigur á Berlínar-úrvalinu. Íslenska U15 liðið stúlkna tryggði sér bronsið með frábærum 68-35 sigri á Hollandi. Leikurinn var í járnum í upphafi þar sem staðan var 4-3 eftir fyrsta leikhluta fyrir Hollandi. Íslensu stelpurnar náðu yfirhöndinni og í stöðunni 19-14 fyrir Íslandi var hreinlega skellt í lás. Hollensku stelpurnar áttu í hinum mestu vandræðum með að skora gegn frábærri íslenskri vörn á meðan okkar dömur léku við hvurn sinn fingur í sókninni. Frábær barátta, samheldni og trú skóp þennan sigur en það skipti engu máli hver steig á gólfið, allar skiluðu sínu! Íslensku liðin hlutu því silfur og brons að þessu sinni á Copenhagen Invitational sem er frábær árangur og gefur góð fyrirheit fyrir framtíðina. Langflestir leikmenn liðsins voru að stíga sín fyrstu skref fyrir land sitt í íslenska búningnum og óhætt er að segja að allir sem einn hafi sýnt fyrirmyndarframkomu bæði innan vallar og utan. Kári Jónsson var valinn í úrvalsliðið en hann sýndi að hann var einn allrabesti bakvörður mótsins Ingibjörg Sigurðardóttir var valin í úrvalsliðið hjá stúlkunum. KKÍ óskar Ingibjörgu og Kára til hamingju með árangurinn.