12 jún. 2012Á föstudaginn síðastliðinn fór fram Golfmót körfuknattleiksmanna í blíðskapar veðri á Hamarsvelli í Borgarnesi. Þátttakan var ágæt á mótinu, sem fram fór í 15. sinn, en 48 kylfingar voru skráðir til leiks. Úrslit í mótinu urðu eftirfarandi: Úrslit án forgjafar: 1.       Guðmundur Örn Árnason  37 punktar 2.       Finnur Jónsson  31 punktur 3.       Gísli Þór Sigurbergsson 28 punktar   Úrslit með forgjöf: 1.       Ármann Markússon  37 punktar 2.       Ingvar S. Jónsson  35 punktar 3.       Rúnar S. Guðjónsson  35 punktar 4.       Einar Þór Skarphéðinsson  35 punktar 5.       Karín Herta Hafsteinsdóttir  35 punktar   Nándarverðlaun voru á fjórum holum: 2. hola: Ármann Markússon 122 cm 10. hola: Einar Þór Skarphéðinsson 91 cm 14. hola: Ríkharður Hrafnkelsson 34 cm 16. hola: Ingvar S. Jónsson 145 cm Fjölmargir aðilar gáfu verðlaun til styrktar mótinu og voru það til að mynda VÍS, Góa og KFC, KKÍ, Gunnar Sverrisson ljósmyndari og Strendingur verkfræðistofa auk þess sem Ingvar Jónsson gaf veglegan bikar þar sem sá eldri hafði uppfyllt sínar skyldur og var útfylltur og færir mótanefnd mótsins þessum aðilum bestu þakkir fyrir. Myndir frá mótinu eru í [v+]http://karfan.is/myndir/myndir/id/1168 [v-]myndasafni á karfan.is[slod-].