6 jún. 2012
Ísland sendir U18 ára lið karla og U16 ára lið stúlkna í Evrópukeppni í sumar. Strákarnir leika í Bosníu en stúlkurnar leika á Gíbraltar.
FIBA Europe hefur opnað vefsíður fyrir öll evrópumót yngri landsliða sem fram fara í sumar. Um er að ræða mótasíður fyrir U16, U18 og U20 karla og kvenna og fyrir A- og B-deildir.
Á síðunum eru allar helstu fréttir, staða í riðlum ásamt úrslitum og leikjaplani. KKÍ mun setja inn lifandi tölfræði glugga á forsíðu www.kki.is þar sem hægt verður að fylgjast með leikjunum í beinni lýsingu.
Heimasíða [v+]http://u18men.fibaeurope.com/enDivB/default.asp [v-]U18 karla í B-deild[slod-] · Sarajevo 9.-19. ágúst.
Heimasíða [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_KNce8jInH7Qj1EsyH5rjn2.compID_0HfDec0vJ1-VlVziYxDM72.html [v-]U16 stúlkna í C-deild[slod-] · Gíbraltar 17.-22. júlí