4 jún. 2012
1999 árgangurinn
2000 árgangurinn
2001 árgangurinn 122 stúlkur mættu víðsvegar af landinu okkar góða í úrvalsbúðir KKÍ um helgina. Æfingarnar fóru fram í íþróttahúsi Álftaness hjá stúlkum, en aðstaða þar er til fyrirmyndar, sem og í Smáranum, Kópavogi, þar sem strákarnir æfðu. Greinilegt var að stelpurnar voru með fókusinn í lagi og stefna á að komast í landslið Íslands í framtíðinni og því mættar til að sýna sig og taka á því og létu ekki veðrið trufla sig. Seinni helgin fer fram helgina 25.-26. ágúst en þá verða stúlkur í Toyota höllinni , Keflavík og strákar í Dalhúsum, Grafarvogi.