31 maí 2012Spennandi körfuknattleiks og leikja námskeið fyrir krakka á aldrinum 6-9 ára ('03-'06) og 10 – 13 ára ('99 – '02) verður haldið í íþróttahúsi ÍR við Seljaskóla. Dagsetning, aldur, tími og verð: 11. – 15 júní: 6-9 ára · kl. 09:00 til 12:00 · 7.500 kr. 10-13 ára · kl. 13:00 til 16:00 · 7.500 kr. 18. – 22. júní: 6-9 ára · kl. 09:00 til 12:00 · 7.500 kr. 10-13 ára · kl. 13:00 til 16:00 · 7.500 kr. 7.- 10. ágúst: 6-9 ára · kl. 09:00 til 12:00 · 6.500 kr. 10-13 ára · kl. 13:00 til 16:00 · 6.500 kr. 13.-17. ágúst: 6-9 ára · kl. 09:00 til 12:00 · 7.500 kr. 10-13 ára · kl. 13:00 til 16:00 · 7.500 kr. Hressing er innifalin í verði. Farið verður yfir helstu grunnatriði körfuboltans eins og knattrak, skot, boltafimi, varnarstaðu og fleira. Mælingar á hraða og stökkkrafti. Samvinnuleikir, þrekæfingar, hopp og snerpuæfingar. Umræður verða um markmið, matarræði, samvinnu og íþróttalega framkomu. Auk körfuknattleiks verður farið í aðra leik eins og til dæmis brennó, skotbolta, kýló, ratleiki og fleira. Kristín Markúsdóttir yfirþjálfari yngri flokka ÍR hefur umsjón með námskeiðunum. Nánari upplýsingar veitir Kristín í síma 845-8497 og skrifstofa ÍR í síma 587-7080. Skráning fer fram á heimasíðu ÍR, [v+]http://www.ir.is [v-]www.ir.is[slod-].