29 maí 2012Mótastjóri hins árlega golfmóts körfuknattleiksmanna, Ríkharður Hrafnkelsson, hefur undirbúið mótið í ár og mun það fara fram á hinum stórskemmtilega og fallega velli í heimabyggð Skallagríms, Hamarsvelli í Borgarnesi þann 8. júní næstkomandi. Þetta er í 15. sinn sem mótið er haldið en það var fór fyrst fram 1998. Mótið verður með hefðbundnu sniði. Ræst er út af öllum teigum samtímis og hefst mótið kl. 11:00 og er áætlaður leiktími ca. 5 klst.. Þátttökugjald er kr. 4.400 kr. á mann. Á mótið eiga erindi allir þeir sem einhvern tíman hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar félaga eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið. Makar eru að sjálfsögðu einnig velkomnir. Áhugsamir eru hvattir til að áframsendið upplýsingar um mótið á alla þá sem þið teljið að eigi erindi í það. Leiknar verða 18 holu punktakeppnir, bæði með og án forgjafar, þar sem hámarksforgjöf verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Skráning og nánari upplýsingar er hjá Ríkharði Hrafnkelssyni í síma 660-3170 eða á netfangið: [p+]rikkihr@visir.is[p-] rikkihr@visir.is[slod-] Að venju er öll aðstoð við útvegun verðlauna mjög vel þegin Undanfarin ár hefur mótið verið mjög vel sótt og því ráðlagt að panta tímanlega.