25 maí 2012
Í dag kl. 09.00 mæta íslensku stelpurnar liði Svía í fyrri leik dagsins á NM í Noregi. Svíþjóð leikur sinn fyrsta leik í mótinu í dag og verður áhugavert að sjá hvernig okkar stelpum gengur gegn sterku liði Svía. Seinni leikur dagsins er svo kl. 17.00 þegar við leikum gegn liði Danmerkur. Danmörk tapaði í gær sínum fyrsta leik gegn liði Finna 89:78. Í liði Danmerkur er leikmaður sem lék með Helenu Sverrisdóttur í TCU, Ida Trygedsson, en hún var nálægt því að ganga til liðs við Grindavík fyrir um tveimur árum síðan hér heima. Hún var atkvæðamest í liði Dana með 24 stig. Hægt er að sjá allt um mótið svo sem næstu leiki, tölfræði og úrslit á [v+]http://basket.no/serie/Sider/Serie%20(hjem).aspx?league_id=12543&season_id=59723 [v-]BasketHotel norska sambandsins hérna[slod-].