22 maí 2012
Í fyrramálið heldur A-landslið kvenna af stað á Norðurlandamótið sem fram fer í Osló að þessu sinni. Landsliðið var á sinni síðustu æfingu fyrir brottför í gær og eru allar stelpurnar tilbúnar fyrir átökin sem framundan er. Fyrsti leikur liðsins á mótinu er á fimmtudaginn. Leikjadagskráin er eftirfarandi: (ísl. tími) Fimmtudagur kl. 16.00 · Ísland - Noregur Föstudagur kl. 09.00 · Ísland - Svíþjóð Föstudagur kl. 17.00 · Ísland - Danmörk Laugardagur kl. 14.00 · Ísland - Finland Punktar: · Gunnhildur Gunnarsdóttir, Haukum, er eini nýliðinn í hópnum. · Fylgdarlið og fararstjórn stelpnanna er ekki að verri endanum, Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður KKÍ, fer fyrir hönd KKÍ, Anna María Sveinsdóttir er aðstoðarþjálfari og Björg Hafsteinsdóttir er sjúkraþjálfari, ágætis reynsla þar á ferð. · Hildur Sigurðardóttir, Snæfelli, er landsleikjahæst í liðinu með 66 A-landsleiki. · Sverrir Þór er að fara í sína fyrstu leiki sem landsliðsþjálfari, hann var aðstoðarþjálfari hjá U20 lið karla í Evópukeppninni s.l. sumar. Landsliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum: (Fjöldi landsleikja fyrir aftan) Hildur Sigurðardóttir · Snæfell · 66 Helena Sverrisdóttir · Good Angels Kosice · 38 María Ben Erlingsdóttir · Valur · 33 Sigrún Ámundadóttir · KR · 20 Petrúnella Skúladóttir · Njarðvík · 18 Pálína Gunnlaugsdóttir · Keflavík · 15 Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir · Njarðvík · 12 Margrét Kara Sturludóttir · KR · 9 Hafrún Hálfdánardóttir · KR · 5 Helga Einarsdóttir · KR · 4 Ólöf Helga Pálsdóttir · Njarðvík · 3 Gunnhildur Gunnarsdóttir · Haukar · Nýliði Þjálfari: Sverrir Þór Sverrisson Aðstoðarþjálfari: Anna María Sveinsdóttir Sjúkraþjálfari: Björg Hafsteinsdóttir Fararstjóri: Guðbjörg Norðfjörð Dómari: Björgvin Rúnarsson