20 maí 2012Íslenska U18 ára landsliðið fékk skell í Solnahallen þegar liðið lék til úrslita gegn Finnum á Norðurlandamótinu. Lokatölur voru 64-105 Finnum í vil sem tóku forystuna snemma, ýttu Íslendingum út úr öllum sínum aðgerðum og léku stíft. Þetta var einnig fyrsti tapleikur 1994 árgangs Íslands í landsleik en þetta lið mun einnig keppa á EM í Sarajevó í sumar þar sem m.a. Finnar verða með okkur í riðli og þá kjörið tækifæri að koma fram hefndum. Fyrri hálfleikur: Finnar leiddu 29-50 eftir fyrri hálfleik. Seinni hálfleikur: Lokatölur 64-105. Vörn: Ísland lék mikið svæðisvörn í leiknum og leystu Finnar hana vel. Að sama skapi var íslenska liðið í gríðarlegum vandræðum gegn finnsku vörninni þar sem menn voru ófeimnir við að fá villur og þjörmuðu vel að íslensku leikmönnunum. Fátt ef nokkuð gekk upp hjá íslenska liðinu í leiknum og því fór sem fór. Súrt í broti fyrir okkar menn að ná ekki að sýna sitt rétt andlit í úrslitaleiknum eftir gott mót þar á undan. Niðurstaða: Góð frammistaða hjá íslenska liðinu, silfur var það að þessu sinni og Finnar verðskuldaðir Norðurlandameistarar.