19 maí 2012Íslenska U16 ára lið karla hefur lokið keppni á Norðurlandamótinu í Svíþjóð en strákarnir kvöddu með sigri eftir þrjá tapleiki í röð þar á undan. Ísland lagði Dani 66-58 eftir að hafa leitt allan leikinn. Högni Fjalarsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu í dag með 12 stig og 2 fráköst. Úthald: Íslenska liðið, rétt eins og fyrri þrjá leikina byrjaði leikinn vel gegn Dönum og leiddu 24-17 að loknum fyrsta leikhluta. Að þessu sinni leið þeim vel við stýrið og héldu út allan leikinn. Ferskir fætur:Snorri Örn gerði miklar breytingar á byrjunarliði Íslands sem var svo skipað: Kári Jónsson, Daði Lár Jónsson, Kristinn Pálsson, Vilhjálmur Kári Jensson og Högni Fjalarsson. Heitur: Högni Fjalarsson valdi góðu skotin í fyrri hálfleik og var eitraður við teiginn. Kúvending: Lok þriðja leikhluta og framan af þeim fjórða var íslenska liðið einrátt á vellinum og gerði þá út um leikinn. Danir bitu frá sér á lokasprettinum en sigurinn var aldrei í hættu. Niðurstaða: Strákarnir hafa lokið keppni með einn sigur og þrjá tapleiki en Danir sem fengu skell gegn Íslandi í dag munu leika til úrslita um gullið á morgun, vandlifað í þessum heimi. Fjarverandi: Pétur Rúnar Birgisson lék ekki með vegna meiðsla en fyrstu þrjá leikina var hann byrjunarliðsmaður en íslenski hópurinn steig vel upp í dag í fjarveru Péturs. Stigahæstu menn Íslands í leiknum: Högni Fjalarsson var stigahæstur með 12 stig og 2 fráköst. Daði Lár Jónsson 10 stig, 5 fráköst, 3 stoðsendingar Kári Jónsson 8 stig, 5 fráköst, 2 stoðsendingar Atli Þórsson 8 stig og 4 fráköst [v+] http://karfan.is/myndir/myndir/id/1158 [v-]Myndasafn[slod-] úr leiknum á Karfan.is [v+] http://iof1.idrottonline.se/templates/PageWide.aspx?id=18454&game_id=1177583&league_id=undefined&season_id=58363 [v-]Tölfræði leiksins[slod-] [v+] http://karfan.is/frettir/2012/05/19/strakarnir_i_16_ara_lidinu_kvoddu_med_sigri [v-]Umfjöllun[slod-] um leikinn á Karfan.is