19 maí 2012
Í dag er komið að síðasta hefðbundna leikdeginum á NM í ár þegar þrjú liðanna okkar leika klára sína fjórðu leiki á mótinu. Ljóst er að U18 karla mun leika til úrslita, óháð úrslitum í þessum leik í dag og U18 kvenna sem lauk leik í gær, mun leika um þriðja sætið. U16 drengja mun lenda í 5. sæti óháð úrslitum leiksins í dag og ljúka keppni. U16 stúlkna þarf að sigra sinn lokaleik með 8 stigum til að fara í úrslitaleikinn, annars leika þær um 3. sætið. Allir úrslitaleikirnir fara fram á sunnudaginn. Leikir dagsins: (ísl. tími) kl. 09.00 · Ísland - Finnland · U18 karla kl. 12.00 · Ísland - Danmörk · U16 drengja kl. 17.00 · Ísland - Finnland · U16 stúlkna