18 maí 2012Íslenska U18 ára liðið mun leika til úrslita á NM þetta árið en þeir voru rétt í þessu að skella Norðmönnum 83-42. Varnarleikur íslenska liðsins var til fyrirmyndar og má segja að sigurinn hafi verið nokkuð fyrirhafnarlítill. Á morgun mæta þeir Finnum en úrslit leiksins munu ekki hafa nein áhrif á íslenska liðið, það mun leika til úrslita á sunnudag sama hvernig fer! Liðsheildin var sterk í dag og þeir Valur Orri Valsson og Hugi Hólm komu magnaðir af íslenska tréverkinu og voru bestu leikmenn liðsins. Tilraunastarfsemi: Bæði lið brydduðu upp á nokkrum varnarafbrigðum í fyrsta leikhluta. Svæði, maður á mann, box-1 og fleira gott. Íslenska liðið hélt sig svo við svæðisvörnina stærsta hluta leiks og gaf það vel. Flautukörfur: Valur Orri Valsson splæsti í flautukörfu í lok fyrsta leikhluta með erfiðu skoti við endalínuna og kom Íslandi í 21-13. Elvar Már Friðriksson mætti svo með aðra í lok annars leikhluta, kom þá Íslandi í 35-23 fyrir hálfleik er hann keyrði upp að körfunni og kom niður erfiðu skoti. Martin Hermannsson lokaði þriðja leikhluta með flautukörfu í teignum og kom Íslandi í 52-33. Svavar Ingi Stefánsson átti lokaorðið í flautukörfukeppninni er hann lokaði leiknum með þrist, sigurinn í höfn og lokatölur 83-42. Stóru stráka vaktin: Stockmann er skrímsli í norska liðinu og þvældist bara fyrir í fyrri hálfleik. Ekkert stig en tvö fráköst. Hann kom að einni troðslu en íslenska teigvörnin át hann í dag. Vörnin: Íslenska vörnin var flott framan af öðrum leikhluta þar sem það tók Norðmenn fjóra og hálfa mínútu að gera sín fyrstu stig í leikhlutanum. Í þriðja leikhluta tók það Norðmenn aftur fjóra og hálfa mínútu að gera sín fyrstu stig og þá minnkuðu þeir muninn í 39-25. Það tók svo Norðmenn fjórar mínútur að gera sín fyrstu stig í fjórða leikhluta þegar þeir minnkuðu muninn í 58-35. Nákvæmlega ekkert að vörninni hjá okkar mönnum. Innkoman: Hugi Hólm kom sterkur inn í fyrri hálfleik og reif í sig hvert frákastið á fætur öðru. Hann lét ekki þar við sitja heldur herti róðurinn í síðari hálfleik og kláraði leikinn með 9 stig og 6 fráköst. Valur Orri Valsson er langbesti sjötti maður mótsins og kom inn með 10 stig, 9 stoðsendingar og 7 fráköst. Fjögurra stiga sókn: Svavar Ingi landaði fjögurra stiga sókn, skellti þrist og setti vítið að auki. Kappinn var 3 af 3 í þristum í dag. Niðurstaðan: Enn einn leikurinn þar sem íslenska liðið sýndu styrk sinn. Eru búnir að tryggja sér úrslitaleik þó að riðlakeppninni sé ekki lokið. Á morgun: Ísland mætir Finnum á morgun kl. 11:00 að sænskum tíma eða 09:00 að íslenskum tíma. [v+]http://www.facebook.com/photo.php?v=3527399236481 [v-]Viðtal[slod-] við Einar Árna um leikinn fyrr í dag á Facebook síðu KKÍ. [v+]http://karfan.is/frettir/2012/05/18/u18_kk_island-noregur:_bein_textalysing [v-]Textalýsing[slod-] úr leiknum á Karfan.is [v+]http://karfan.is/myndir/myndir/id/1153 [v-]Myndasafn[slod-] úr leiknum á Karfan.is