18 maí 2012Árlegt þing FIBA Europe stendur nú yfir í Ljubljana í Slóveníu og lýkur því á sunnudaginn. Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður KKÍ og Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdastjóri KKÍ sitja þingið fyrir hönd Íslands. Ólafur Rafnsson fv.formaður KKÍ og núverandi forseti FIBA Europe er að sjálfsögðu einnig á staðnum og stýrir hann þingstörfum. Fulltrúar 48 aðildarlanda FIBA-Europe eru mættir til Ljubliana en 51 þjóð er aðili að samtökunum.