17 maí 2012Strákarnir í u18 ára landsliði Íslands voru rétt í þessu að ljúka leik gegn heimamönnum í Svíþjóð. Framlengja varð þennan spennuleik þar sem Ísland reyndist sterkari á endasprettinum. Eftir frábæra byrjun á leiknum fór að síga á ógæfuhliðina og Svíar færðust nærri. Heimamenn jöfnuðu leikinn á lokasekúndunum 76-76 með flautukörfu svo framlengja varð leikinn. Íslendingar bitu í skjaldarrendur og kláruðu leikinn af öryggi þar sem risavaxinn þristur fyrirliðans reyndist banabiti heimamanna. Sigur Ísland tryggir þeim að minnsta kosti sæti í bronsleiknum svo ljóst er að U18 ára liðið mun leika til verðlauna á mótinu. Óskabyrjun Íslands, 20-4 eftir sjö mínútna leik og héldu Svíum stigalausum fyrstu fimm mínútur leiksins. Emil Karel fyrirliði fór þá mikinn í vörninni og hélt mönnum vel við efnið. Dagur og nótt: Fyrsti leikhluti fór 23-12 fyrir Ísland en Svíþjóð vann annan leikhluta 19-15 þar sem Íslendingar voru afar bragðdaufir og fóru oft illa með fínar sóknir. Ísland leiddi þó í hálfleik 38-31. Dómgæslan: Dómarar leiksins voru Íslendingum alltof ofarlega í huga í fyrri hálfleik og það gerði vart við sig smá pirringur í herbúðum Íslands í öðrum leikhluta. Bekkurinn: Valur Orri kom sterkur af bekknum strax í fyrsta leikhluta og stimplaði sig inn með þrist, baneitraður karlinn. Hann var þó fljótur að næla sér í þrjár villur. Útslagið: 1.30mín til loka framlengingar þegar Emil Karel setur risavaxinn þrist og kemur Íslandi í 79-72. Svíar unnu bæði annan og þriðja leikhluta, annan leikhluta 19-15 og þriðja leikhluta 18-15. Næstum því buzzer: Martin Hermannsson kom Íslandi í 67-65 þegar 3 sekúndur voru eftir en Svíar mættu með buzzerinn og tryggðu framlengingu. Niðurstaðan: Stigu upp á réttum tíma eftir að hafa verið fremur daprir eftir fyrsta leikhluta. Reynslan sýndi sig á ögurstundu. Næsti leikur er gegn Noregi á morgun kl. 09.00 að íslenskum tíma. [v+]http://karfan.is/frettir/2012/05/17/u18_kk_island-svithjod:_bein_textalysing[v-]Textalýsing[slod-] frá leiknum á Karfan.is [v+]http://karfan.is/myndir/myndir/id/1151[v-]Myndasafn[slod-] úr leiknum á Karfan.is [v+]http://iof1.idrottonline.se/templates/PageWide.aspx?id=18454&game_id=1177853&league_id=undefined&season_id=58373#mbt:11-400$t&0=1[v-]Tölfræði leiksins[slod-]