11 maí 2012Sverrir Þór Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á landsliðshópnum sem fer á NM núna í lok maí. Ragna Margrét Brynjarsdóttir, dróg sig úr hópnum af persónulegum ástæðum, og hefur Sverrir valið Hafrúnu Hálfdánadóttur, KR, í hennar stað. Hafrún hefur leikið fimm landsleiki fyrir Íslands hönd með A-landsliðinu. Landsliðið er á æfingum um þessar mundir og verður æft fram að brottför sem er þann 23. maí.