10 maí 2012Daníel Geir Moritz mun mæta í Stapann á laugardaginn og flytja gamanmál eins og honum er einum lagið. Daníel er handhafi titilsins „Fyndnasti maður Íslands“. Hann hefur verið að grúska í afrekum vetrarins á tölfræðivef KKÍ og má gera ráð fyrir einhverjum glósum frá honum um körfubolta ásamt öðru. Miðapantanir eru í fullu gangi hjá [p+]pantanir@stapinn.is[p-]pantanir@stapinn.is[slod-]. Gestir eru beðnir að taka fram fyrir hvaða lið er verið að panta svo hægt sé að raða öllum saman á borð.