30 apr. 2012
Myndir: Karfan.is Fyrri úrslitahelgi yngri flokka var haldin fyrir rúmri viku og fór hún fram í umsjón Njarðvíkur. Fjórir flokkar léku til úrslita þessa helgi og urðu eftirtalin fjögur lið íslandsmeistarar: Keflavík í 9. flokki stúlkna Haukar í 10. flokki drengja Njarðvík í stúlknaflokki KR í drengjaflokki KKÍ óskar liðunum og leikmönnum til hamingju með titilinn!