20 apr. 2012Í kvöld er komið að fyrri úrslitahelgi yngri flokka en undanúrslit drengjaflokks fara fram í kvöld. Leikið er á tveim helgum og nú er komið að þeirri fyrri. Þá mætast Njarðvík-KR kl. 18.00 og Keflavík-Breiðablik kl. 20.00. Á morgun eru svo sex undanúrslitaleikir á dagskránni og á sunnudaginn eru komið að úrslitaleikjunum. Leikið er í Drengjaflokki, stúlknaflokki, 9. flokki kvenna og 10. flokki karla um helgina. Leikið er í umsjón Njarðvíkur um helgina en næstu helgi fara leikir í hinum flokkunum sem eftir verða í DHL-höllinni.