17 apr. 2012Um næstu helgi er fyrri úrslitahelgi yngri flokka. En þá verða krýndir Íslandsmeistarar í 9. flokki stúlkna, 10. flokki drengja, stúlknaflokki og drengjaflokki. Leikið verður í Njarðvík föstudag, laugardag og sunnudag. Helgina eftir eða dagana 27.-29. apríl fer fram seinni úrslitahelgin en þá verður leikið í DHL-höll KR-inga. Þá verða úrslit í 9. flokki drengja, 10. flokki stúlkna, 11. flokki drengja, unglingaflokk kvenna og karla. Undanúrslit verða í drengjaflokki á föstudaginn 20. apríl en 8-liða klárast í kvöld. Föstudagur 20. apríl 18.00 Drengjaflokkur - undanúrslitaviðureign 1 20.00 Drengjaflokkur - undanúrslitaviðureign 2 Laugardagur 21. apríl 10.00 9. flokkur stúlkna · Grindavík-Haukar 11.45 9. flokkur stúlkna · Keflavík-Njarðvík 13.30 10. flokkur drengja · Grindavík-Njarðvík 15.15 10. flokkur drengja · Haukar-Stjarnan 17.00 Stúlknaflokkur · Njarðvík-Valur 19.00 Stúlknaflokkur · Keflavík-Grindavík Sunnudagur 22. apríl 11.00 Úrslitaleikur · 9. flokkur stúlkna 13.00 Úrslitaleikur · 10. flokkur drengja 15.00 Úrslitaleikur · Stúlknaflokkur 17.00 Úrslitaleikur · Drengjaflokkur