
4 apr. 2012Aga- og úrskurðarnefnd hefur komið saman og tekið fyrir kæru sem barst eftir viðureign tvö milli Keflavíkur og Stjörnunnar sem fram fór mánudaginn 2. apríl. Niðurstaða nefndarinnar er eftirfarandi: Úrskurðarorð: · Kröfu Keflavíkur um frávísun er hafnað. · Kröfu Stjörnunnar um að Magnús Þór Gunnarsson verði dæmdur í bann vegna atviks í leik Keflavíkur og Stjörnunnar í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik er hafnað. · Kröfu Keflavíkur um ómaksþóknun er hafnað. Hægt er að lesa úrskurðinn í heild sinni [v+]http://www.kki.is/skjol/agaurskurdur27.pdf [v-]hérna[slod-].