4 apr. 2012
Strákarnir í KR-a og KR-b
Strákarnir í 7. flokki karla hjá KR-b urðu um helgina Íslandsmeistarar 2012. Leikið var í DHL-höllinni í Vesturbænum á þessu lokamóti tímabilsins.
Í lokaleik mótsins áttust við KR-a og KR-b og fór svo á endanum að KR-b sigraði og urðu meistarar en Keflavík varð í öðru sæti á mótinu.
KR-a hefði orðið meistari með sigri og þá hefði KR-b orðið í öðru sæti á íslandsmótinu þannig að framtíðin er björt hjá þessum efnilegu KR-ingum sem sjást hér saman á myndinni að ofan.
Til hamingju KR!