2 apr. 2012
Keflavík varð Íslandsmeistari í minnibolta kvenna um helgina eftir sigur á Grindavík í úrslitaleik þar sem bæði lið voru búin að vinna sína leiki í mótinu. Með sigrinum er enn einn titillinn kominn í hús hjá stelpunum í Keflavík en 7. og 8. flokkur kvenna eru einnig búnar að vinna titilinn í ár. Keflavíkurstelpurnar spiluðu vel alla helgina og framtíðin er björt hjá þessum ungu stelpum. Til hamingju Keflavík!