31 mar. 2012Í dag kl.15.15 fer fram í Kennaraháskólanum úrslitaleikurinn í B-liða deild karla 2012. Liðin sem mætast eru Haukar og KR. Haukar lögðu Keflavík í undanúrslitunum og KR lagði Stjörnuna. Það er því ljóst að nýjir meistarar verða krýndir í dag en Stjarnan er meistari B-liða síðastliðinna tveggja ára. Stefnt er að því að senda út lifandi tölfræðilýsingu frá leiknum á kki.is.