28 mar. 2012Úrslitakeppni 2. deildar karla og b-liða deild karla stendur sem hæst þessa daganna. Í 2. deild eru 8-liða úrslitunum lokið og ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitunum. Augnablik hafði sigur gegn Víkíng Ó. 85:69 Leiknir R. lagði Bolungarvík 94:76. Mostri tapaði heima gegn Fram 55:63, en Mostramenn voru efstir eftir deildarkeppnina í ár án taps. Reynir Sandgerði sigraði HK úr Kópavogi 80:69. Liðin sem mætast í undanúrslitunum eru því: Augnablik - Leiknir R. í Kórnum, Kópavogi Fram - Reynir S. í Kennaraháskólanum Þau tvö lið sem fara í úrslitaleikinn leika í 1. deild að ári. Undanúrslitin verða leikin dagana 30. mars - 2. apríl og úrslitrslitaleikurinn fer svo fram í Laugardalshöll þann 14. apríl. B-liða deild karla: Í undanúrslitunum sigruðu Haukar lið Keflavíkur og í Garðabæ sigraði KR lið Stjörnunnar. Það verða því Haukar og KR sem mætast í Kennó næstu helgi í úrslitaleiknum.