28 mar. 2012
Keflavík varð um helgina Íslandsmeistari í Minnibolta drengja en leikið var í umsjón Stjörnunnar í Garðabæ. Strákarnir unnu þrjá leiki og töpuðu einum. Njarðvík var með jafnmarga sigra en Keflavík vann innbyrðis viðureignina og hampaði titlinum í mótslok. Þetta er í fyrsta sinn að karlaflokkur á grunnskólaaldri verður Íslandsmeistari í 12 ár en þá varð Keflavík einmitt síðast meistari í minniboltanum. Til hamingju Keflavík.