26 mar. 2012
Í kvöld klukkan 20:00 verður upphitunarþáttur um úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Úrslitakeppnin hefst á fimmtudaginn kemur og eins og undanfarin ár er mikil spenna fyrir framhaldinu. Þátturinn verður endursýndur á miðnætti svo það er um að gera að skella sér á Ásvelli til að sjá leik #2 hjá Haukum og Keflavík í undanúrslitum kvenna og taka þáttinn í endursýningu eða horfa á hann í plús.