25 mar. 2012Það er óhætt að segja að það verði talsverður skjálfti á vesturlandinu í kvöld en tveir hörkuleikir eru á dagskrá. Umspil um laust sæti í Úrvalsdeild karla Á Akranesi fer fram leikur #2 í umspili um lausa sætið í Úrvalsdeild karla á næsta tímabili en þar leiðir Skallagrímur 1-0 en tvo sigra þarf til að vinna umspilið. Undanúrslit í Iceland Express deild kvenna Í Stykkishólmi fer fram leikur #2 í viðureign Snæfells og Njarðvíkur í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna en Njarðvík leiðir einvígið 1-0. Þrjá sigra þarf til að komast í úrslitaleikina.