24 mar. 2012B-liða keppni meistaraflokkana hefur verið jöfn og skemmtileg í vetur. Nú er staðan orðin sú að öll liðin á toppnum eru jöfn með 7 sigra. Þau hafa öll unnið einn leik og tapað einum gegn hvert öðru. Þá þarf að fara í innbyrðis útreikninga milli þessara fjögurra liða og reikna út „mini-deild“ þeirra á milli. Staðan er sú að þegar búið er að taka skoruð stig og stig fengin á sig í þessum leikjum er staðan þessi: Lokastaða efstu liða: 1. Stjarnan b 7/3 14 2. Haukar b 7/3 14 3. Keflavík b 7/3 14 4. KR b 7/3 14 Innbyrðisstigaskor: Stjarnan +15 Haukar +0 Keflavík -1 KR -14 Það verða því Stjarnan og KR sem mætast og Haukar og Keflavík í undanúrslitunum. Laugardagur 24. mars kl. 16.30 Stjarnan-b - KR-b Ásgarður Sunnudagur 25. mars kl. 16.00 Haukar-b - Keflavík-b Schenker-höllin