21 mar. 2012Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö máli í vikunni. Igor Tratnik, leikmaður Tindastóls, fær einn leik í bann en honum var vikið úr húsi gegn Þór Þ. í 20. umferð Iceland Express-deild karla. Matthew Haiston, leikmaður Þórs Þ., fær einn leik í bann en honum var vikið úr húsi gegn Tindastól í 20. umferð Iceland Express-deild karla. Bann þeirra tekur gildi á hádegi fimmtudaginn 22. mars.